16.6.2007 | 23:55
Dægurþras og Kvöldþankar.
Í dag er sextándi júní .,þegar ég fór til vinnu í morgun þá hélt ég
að væri komið haust veðrið var þannig,drungaský á himni og frekar
kalt´.Það rættist heldur úr veðrinu þegar líða tók á daginn. Held
að hitinn hafi komist í tíu gráðurnar eða svo, .frekar rólegt að gera
í vinnunni,búin að vinna kl,hálf fjögur. Það verður opið á morgun
frá níu til átta annað kvöld.Ég verð ekki að vinna á morgun mér
bara datt það sko als ekki í hug á sjálfan líðveldisdaginn.
Nóg er samt ,.það er orðið svo að það verður unnið alla daga ársins..
ef fram gengur sem horfir.Við Dísa fórum með blómin sem við keyptum vestur í garð
og settum á leiðin,´. Árni var búin að setja blóm á leiðin, áður en að hann fór austur
hann er kominn í sumarfrí og ætlar að vera á Vopnafirði einhvern tíma,og veiða silung
ja mikið öfunda ég hann.Og þó
Vísa dagsins.
Oft til lofts og sjávar lítur
lyndisprúður skipsstjórinn.
Ef ei bár'á skeri brýtur
bíst hann strax í róðurinn.
Blikinn létta öldu öslar
öflin vélar eru næg.
Líka þarna Gammur göslar
gerðist þeirra sigling fræg.
Góða nótt í Guðs friði.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Þórhallur
Flottar vísur hjá þér og flott síða samt erfitt að lesa hana þar sem letrið fellur inn í bakgrunnin mætti stækka letrið til að laga það
Steinþór Gunnarsson, 17.6.2007 kl. 00:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.