Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Vetrar þankar,og annað bull.

Sit hér með hálf tóman haus,hef verið heima með hálsbólgu og einhverja bansetta flensu tn2tnVitinn%20og%20stapinn%2023%20feb%20001_1lumbru.Enn snjóar,vonandi fer þessu nú að linna,og blessuð sólin fari að láta sjá sig.Þetta er búin að vera langur og frekar leiðinlegur vetur , í það minnsta sem af er. Öll él birta upp um síðir ,og blessað vorið kemur með vorþeyinn og farfuglana.Við lifum í voninni er það ekki? Það er búið að ganga á ýmsu hér í borg í vetur,borgarstjórnar meiri hluti vinstri manna með Dag B Eggertsson sem borgarstjóra var feldur, ég er ekki ánægður með það, hvernig að var staðið.Sjálfstæðis menn með Ólaf B Eggerttsson sem borgarstjóra  til eins árs,þá á Vilhjálmur að taka við. Gengur þetta dæmi upp? Verður nokkur friður?Vonandi láta þeir verkinn tala. Kjara samningar eru vonandi í höfn,á eftir að samþykkja þá, atkvæða seðlar hafa verið sendir til staðfestingar ,með eða móti, talningu líkur um hádegi þann tíunda þessa mán.'Eg held að þetta séu bestu samningar sem gerðir hafa verið fyrir verkafólk í langan tíma.En það er hættan stóra að menn freistist ekki til að færa kauphækkanirnar út í verðlagið.Til hvers er þá barist?Framlag okkar til Euro vison keppninnar í vor er nokkuð gott, Regína 'Ósk og Friðrik Ómar, eru góðir flytjendur,. og óska ég þeim alls hins besta.  Vonandi forum við upp fyrir 16tánda sætið. Sjáum til,.

                                           Vísur dagsins

                       

  1.  
    1. Treg í taumi er hún Skjóna
    2. en tafir engar samt hún kann,
    3. á það til að bíta og prjóna
    4. andskotans hryssan drepur mann.
    5.          Þessi er nú ekki djúpt kveðin. 
  2.                  
    1. Skjóni var mikið mæðu hross
    2. sem mikið varð hann að þola,
    3. sánkti  Kári sé með oss
    4. svo var hann líka rola.
    5.         Ekki var þessi skárri.
  3.                    
  4.          Gangið hægt um dyr gleðinnar
  5.            Góða nótt í Guðs friði.
  6.                       Halli.

Bottninn austur á Borgafirði og aðrir Ferðaþankar.

talinternet.is 043talinternet.is 048   Í dag er sjöundi águst gott veður.

 Náði í parketið í dag , það var

bansett púl að koma því upp

í lyftunni þurfti að fara margar

ferðir, En upp hafðist það að lokum, vona svo að Dolli drengur fari að láta í sér heira. Svanur hafði samband í kvöld og lætur vel af ,fóru út að versla í dag. Við fórum í góðan sunnudags bíltúr með Markúsi og Heiðdísi Hörpu. Þær mæð-gur,Sigga og Kristín Aldís komu ekki með,sem okkur þótti mjög leiðinlegt, því ferðalagið var í alla staði mjög ánægjulegt .Fórum að Strandakirkju  og skoðuðum okkur um á svæðinu tókum myndir .fengum okkur í svanginn í Tbæ ,ljómandi góður staður það.Dolli litli hvutti var með í för ekki má gleyma honum, kurteis og alveg afbragðs ferðafélagi,skældi smávegis svona aðallega þegar bíllinn hossaðist, sem var ekki nema von þvi hann sá ekkert út greyið litla.um kvöldið komum við í Bláalónið og fengum okkur kvöldmat,sem bragðaðist alveg ljómandi vel. fórum þaðan beint í bæinn og heim. Góður og í alla staði indæll dagur að kveldi kominn.Þakka ferðafélögum,Dísu,Krúsa ,Heiðdísi Hörpu,Og Dolla litla ,góðan og ánægjuríkan dag.Heart

 Þetta dugar

 að sinni .                                                          læt svo vísu og kveðjudagsins fljóta með svona í lokinn.

  • Æskunnar ár,
  • indælu ár,
  • er húmið var  ljóst og létt.
  • Sálinvar hrein og hvít sem línth_cat2520082520blank
  • og hungri ei takmörk sett.
  • Ég gekk ´´a með lífið
  • í lúkunum,
  • sjáandi sípíndur var.
  • Þjáningafulla vitlausa veröld
  • á veikum herðum ég bar.
  •   Þítt úr Sænsku.
  •      Þórarinn frá Steintúni.
  •                              
  •    InLove Góða nótt í Guðs friði.
  •              Halli.Halo

  


Fagra Veröld ,kvöld í Reykjavík.

talinternet.is 042talinternet.is 018talinternet.is 099 

    talinternet.is 077

Í dag er annar águst mjög fagurt út að líta núna þegar klukkan er langt genginn í ellefu að kvöldi . Blessuð sólin gyllir bæði himin og fjalla hringi Esju Skarðsheiði  Akrafjall og sjálfan jökulinn á Snæfelli ,fögur sjón: 'Eg er alveg heillaður.Þeir frændur Svanur og Jón Bragi fóru í dag til Bandaríkjanna og svo þaðan til Trinedad,þar ætla þeir að vera í hálfan annan mánuð hjá Jakob og Sjanu má ekki gleyma litla Jóhanni Ara,sem fagnar þeim frændum sínum ásamt kvuttanum ,ég man ekki hvað hann heitir enda skiptir það svo sem engu máli.Vonandi skemmta þeir sér vel og hafa það örugglega mjög gott.-----------------------.Það eru meiri fréttirnar sem dynja yfir landann svo til á hverjum degi , líkams árásir og morð.algóður Guð styrki aðstandendur þeirra fórnarlamba sem lenda í slíku.----------------------------Við Dísa skruppum í kvöldbíltúr ,fórum austur að Litlu kaffistofunni og Hafra vatns leið og um Mosfellsbæ til baka heim.

  • Læt þetta duga af bulli og rausi í dag. Læt  ljóð dagsins fljóta með svona af gömlum vana.
  •                     Ljóð Dagsins.
  •             Draumalönd :,Höf.Björn G Guðnason
  • Góður svefn er hvíld frá hvunndagsþrautum
     
  • hvað er betra en flakk um draumalönd,
  • þreitt og sljó um vanda títt við tautum
  • tilveran er stundum upp á rönd.
  • þá er gott að detta í dyngju mjúka
  • draga upp að höku fiðursæng,
  • burt frá öllu dagsins streði strjúka
  • og stökkva upp á draumsins breiða væng.
  •                                                     
  • Hann oss ber til bjartra vonarstranda
  • breytir gráum heimi í paradís
  • þeytist um  til þúsund draumalanda
  • þar til dagsins brún úr hafi rís.
  • Ljúfar stundir nætur margir muna
  • mörg er hugans perla þangað sótt
  • því finnst úfnum heila best að bruna
  • beint í draumsins faðm er kemur nótt.
  •                                                    
  •   Ég þakka Birni vini mínum fyrir  hanns
  •  fallegu og mannbætandi ljóð!HeartInLove
  •                                            
  •      Göngum öll götuna til góðs.
  •     Góða nótt í Guðs friðiInLove
  •          Crying  Halli. Sleeping                    
  •                

Að mörgu er að hyggja, er ekki að byggja,.Afmæli og ferðalag.

hestar1_small1talinternet.is 007talinternet.is 005

Í dag er tuttugasti og sjötti júlí sama blessuð blíðan búin að vera síðan ég kíkti hér við síðast.Við erum búinn að fara í þó nokkra bíltúra.Núna um síðustu helgi fórum við

í Skálholt og skoðuðum staðin okkur til mikillar gleði,

með okkur í för voru Markús og Sigga dætur þeirra

Kristín Aldís og Heiðdís Harpa.Heart Svanur var okkar bílstjóri,

við áttum að ég held mjög ánægjuríkan dag.Komum við

í Sólheimum og fengum okkur í svanginn, og skoðuðum staðinn,tókum myndir og nutum veðurbliðunar.

Svo um kvöldið   bauð ég ölum í mat á Selfossi, á

veitingastaðnum fljótinu,þar snæddum við alveg skínandi góðan mat,allir ánægðir að ég held með daginn.

Ég átti afmæli núna um daginn eða réttara sagt þann tuttugasta þessa talinternet.is 016mánaðar, ekkert merkis afmæli,

en það var heldur betur látið með kallinn,gjafabréf frá

vinnufélögum, og ekki nóg með það þá bauð fjölskylda mín mér út að borða um kvöldið, fínn matur og gjafabréf

upp á fleiri þúsundirInLove, ég var í sjöunda himni og alveg

undrandi og ánægður með daginn að  öllu leiti.Wizard

Við erum búin að kaupa parket á stofuna og eldhús plús

hol,verður byrjað á mánudaginn að taka það gamla af gólfunum. Vona að það taki ekki of langan tíma.

Jón Bragi bauð okkur í afmælisveislu í dag sem við þáðum með þökkum, góðar veitingar, og góður andi, kærar þakkir Jón BragiKissing. Erla og Siggi kærar þakkir.Police

  •       Ljóð dagsins,
  • Til himna berast Drottni döpur köll
  • er dymmur óttinn bænir manna vekur,
  • glaðlegt tal og hávær hlátra sköll
  • hljóðna þegar einsemd völdin tekur,
  • gagnslaust er að búa í hárri höll
  • ef hreysi sálar tætt og gisið lekur,
  • fyrir björgin hverfur auðlegð öll
  • einatt þegar fólk í nauðir rekur´,
  • því er gott að hafa í hugann greypt
  • að hamingjuna fá menn ekki keypt.   
  •        Höfundur þessa fallega ljóðs .
  •        Björn G Guðjónsson.
  •           Þökk sé þér!Heart
  •                           
  •      Göngum hægt um gleðinnar dyr.
  •      Góða nótt í Guðs friði.
  •               Halli.

Í annríki liðandi daga. Og annað raus.

tnDSC03529 InLovekindur

       tn2tnVitinn%20og%20stapinn%2023%20feb%20001_1

Í dag er fjórtándi júlí,fagurt út að líta, veðrið er svipað

eins og það er búið að vera að undanförnu, aðeins meiri skýá himni.Ég er heima,með einhverja magakveisu

annars á ég að vera í vinnunni, fer sennilega ekki til vinnu á morgun.Kominn í sumar frí á mánudag.Whistling

  • Dísa er búin að vera slöpp  í gær og í dag sem er trúlega vegna verkjalyfja sem henni var ráðlagt að taka eftir aðgerðina. Það er læknir kjá henni núna
  • og heldur að slappleikinn stafi af blóðleisi, þarf að fara í blóðmælingu til Guðmundar ,eftir helgi.
  • Fór í apótekið í Smáranum eftir lyfjum sem læknirinn skaffaði
  • henni við ógleðinni .Verslaði það sem vantaði í leiðinni heim.
  • Við Svanur ætlum að snæða kjúlla í kvöld.kannski Dísa fái sér smá bita með okkur,annars elda ég handa henni hafragraut,og gef henni lifrarpylsu með.Heart
  • Spánarfararnir eru komnir heim og eru mjög ánægð með ferðinaInLove Kristín Aldís er sennilega búinn að fá páfagaukinn og er alsæl. Heiðdís Harpa ,tapaði tönn á Spáni,hún er algjört krútt svona tannlaus þessi elska.WizardMarkús og Svanur fóru í bíó núna kl átta veit ekki hvaða mynd þeir fara að sjá.Við Svanur horfum svo seinna í kvöld á fótboltaleik.Horfði á fréttirnar í sjónvarpinu ,það var ósköp lítið markvert  í fréttunum.
  • Einhver mótmæli við lögreglustöðina, trúðar og einhverjir aðrir rugludallar,
  • Myndirnar eru frá Bakkafirði, flottar myndir,.Halo

    Vísur dagsins.

Brotna öldur böls við klett

brimið skall á flúðir,

ljóðin saman setja rétt

bagga sveinar prúðir.Tounge

Út í móa grösin gróa

gengur lóa bráðum þar

sá ég stelk og vælu kjóa

spóa líka, rjúpu parWizard

 Hugaður að heiman fer

hyggst á veiðar glaður,

pokaskjatta á baki ber

bogin sveitamaður.Sick 

Góða nótt, í Guðs friði.

            HalliWhistling                  

 


Einn góðviðrisdagurinn,Sólarsamba.

  • kristin20070628T172000Z-P-TNS-RCON-C444-NVO-C444ZORSE_lg     Níundi júní Heartbongo blíða og bæirnir  
  • um kring.Blessað góðviðrið heldur áfram  dag eftir dag.Lífið heldur áfram sinn vana gang.Vinna aftur vinna og smá pásur á milli,styttist í sumarfríið hjá mér,fjórar kvöldvaktir svo kominn í frí ,það er ágætt að fá smá frí frá puðinu,Dísa er óðum að hressast eftir aðgerðina. Við Svanur erum búnir að Hei%3F%3Fd%3F%3Fs%20j%3F%3Fl%202005horfa á fjöldann a
  • llan af fótboltaleikjum í Suður Ameríska boltanum.Spánarfararnir koma heim á fimmtudag, sólbrún og sælleg ,ætli Heiðdís sproki ekki bara orðið á spænsku.það verður gaman þegar þau koma heim,Kristín Aldís er sjálfsagt orðin spennt, Páfagaukurinn
  • bíður eftir nýjum eiganda.Hesturinn á myndinni er afbrygði af sebrahesti Þýskur að ég held. Jakob velkominn sem minn
  • bloggvinur.

                        JoyfulLjóð dagsins.Crying

                          Lending Höfundur, Björn G Guðjónsson.Halo

  • Í brimróti útsynnings bátur minn hrekst,
  • blindskerin hættunum leyna,
  • á háreystum öldunum hendist og skekst
  • holskeflur byrðinginn reyna,
  • ráða mun lukka hvort lendingin tekst
  • í ládauðan vog milli hleina.
  •                                                   
  • Hræddur og máttvana hef ég upp raust
  • og Herra minn ákalla í bænum´,
  • lúinn á volkinu legg ég mitt traust
  • á leið hans frá öldunum grænum,
  • svo kjölskakkur bátur minn komist í naust
  • úr kraumandi ólgusænum.

             Góða nótt í Guðs friði.Heart

                      Halli.Whistling


Einn góðviðris dagurinn enn.

  • talinternet.is 083ÞaðStapavik_small1 er kominn sjötti júlí og sama blessuð blíðan búin að vera dag eftir dag og vonandi  verður 
  •                                     Sama blíðan áfram                 tn2           .Dísa er búin að fara í aðgerðina sem tókst
  • vel.Fær sennilega að koma heim á morgun..
  • Ég er búinn að kaupa nýjan prentara sem er mikið fullkomnari en sá gamli.Prentar út myndir á pappír
  • og disk, ljómandi góður gripur.
  • Það er allt gott að frétta af Spánar förunum, spóka
  • sig í sól og yfir þrjátiu stiga hita, manni þykir nógu
  • heitt hér á gamla Fróni.
  • Fór suður í garð og vætti blómin á leiðunum.
  • Við Svanur ætlum að horfa á fótbolta leiki í kvöld.
  • Förum í heimsókn til Dísu núna á eftir.
  •   Eitt núll fyrir Skagamenn í hálfleik móti Keflavík. Fylkir--  Kr,  núll-núll.Valur fjögur eitt móti H K .Leik rétt ólokið.                             
  •      Vísa dagsins.
  •           
  • Sól sól blíð
  • sjá ljós bjart,
  • grjót götu hart
  • grös iðgræn fríð.
  • Seðja sig hér
  • sáralétt er
  •     
  •   Góða nótt í Guðs friði.
  •         Halli. 

Kíkt á skjáinn.

talinternet.is 069s-v.0.9-eu-3f77d0c291f883f77d0c292ec7   Það eru að koma mánaðarmót,tuttugasti og níundi júní í dag

tíminn flýgur áfram , það er sama blessuð bongóblíðan

dag eftir dag,.Markús  og Sigga ásamt dætrum flogin til

Spánar , og verða þar í hálfan mánuð,vonandi skemmta þau sér vel.Rósa Þórunn kom  í heimsókn í dag.

ætlar heim til Norge á miðvikudaginn næsta. 

Ég held að hitinn hafi farið í tuttugu stigin í dag þegar heitast var. Verð í frýi fram á mánudag.

  • Látum svosem eina létta fljóta með svona af gömlum vana.
  •                                    
  • Drengurinn er dæmalaus
  • dregur stannslaust ýsur
  • líka er með röfl og raus
  • og rætnar kveður vísur.
  •                                 
  • Vanda skal í kýrnar vín solarlag524149464AUvbfZ_th
  • vodka flestar drekka.
  • pilsum klæðast keldusvín
  • kettir smíða rekka.
  •             Góða nótt í Guðs friði.
  •                    Halli.             

Afmælisdagur ,Kristinar Aldísar

Átjándi  Júní, Kristín Aldís á afmæli í dag.

  • Árin eru undra fljót að líða,litla afastelpan mín er orðin
  • fimmtán ára, Til hamuingju með daginn elskan mín.
  • Von mín og ósk er sú að þú eigir bjarta og gæfuríka
  • framtíð. Þess óskar þinn bulluafi.
  •    
  •     Morgun í Júní                                     
  •    
  •   Vorið brumið vekur þekur
  •   völl og haga ljósum rósum.
  •   Árnar leita létt með skvettum,kristin
  •   leiðar fram í glæjan æginn.
  •   Ilm af heiðum burknabreiðum,
  •   blágresi og reyrnum þeyrinn,
  •   andar rótt og æskuþróttug
  •   iljar fræ og blessar daginn.
  •    
  •  Höfundur,.Þ Magnússon, frá Steintúni.
  •                      
  •          Í guðs friði,. Góða nótt
  •                        Halli.

  

                            

 


Það er kominn sautjándi júní.

Hei%3F%3Fd%3F%3Fs%20j%3F%3Fl%202005Þjóðhátíðar dagur okkar Íslendinga er runnin upp bjartur og

    • fagur.veðrið er bara ágætt,og spáin fyrir næstu daga
    • frekar góð.Við ætlum að fara í  bæinn á eftir til að líta á mann-
    • lífið og það sem verður til skemmtunar.Förum örugglega í kaffi
    • í kaffivagninn, eða eitthvað annað.okkur er boðið í afmæli
    • Kristínar Aldísar, annað kvöld. Hugsa sér hún er að verða fimm-
    • tán ára, Já svona Þýtur tíminn áfram.
    • Og litla systir hennar hún Heiðdís Harpa verður kominn á
    • skóla skyldu aldurinn í haust.
    • Núna klukkan rúmlega fimm erum við komin heim, skruppum
    • bæinn það var þvílíkur aragrúi af bílum alstaðar að við gáfumst
    • bara upp,keyrðum vestur á nes, og þaðan upp í Árbæjarsafn.
    • horfðum þar á þjóðdansafélaga dansa eftir harmonikkumúsík.
    • Svo fórum við og fengum okkur sukkulaði og meðlæti. þurftum að
    • biða eftir þjónustu í þrjú korter, það var svona mikið að gera
    • hjá stelpu skinnunum, maður var ekkert að stressa sig yfir því,
    • Svo fórum við bara heim, til að hugsa um kvöldmatinn.
    • vorum með þetta fína
    • einiberja kryddað lambalæri, sem bragðaðist
    • alveg frábær lega,.Svanur var ekki í mat, fór í bæinn með
    • vinum sínum, og þeir fengu sér eitthvað snarl saman.
    • Við Svanur fórum niðrí  Leirubakka til Siggu og Krúsa til að
    • horfa á leikinn milli Serba og 'islendinga, Frábær  leikur sem
    • strákarnir unnu sem var þeim mikilvægt, til að komast´áfram
    • á Evrópu mótið.2008, frábært, ,. Til hamingju  strákar.kristin
    •                                                  
    •                    Ljóð dagsins.
    •   Bjart er í júní blærinn hlír´
    •   blómin risin úr dái,
    •   allur heimurinn er sem nýr,
    •   eyddur hjúpurinn grái.
    •   Ótrúleg gerast ævintýr,
    •   ótal vættir á stjái,
    •   þá Jónsmessunæturdöggin dýr
    •   drýpur af hverju strái.
  •                                  
  •            Höf.J B.Frá.Hallkelsstöðum.
    •       Góða nótt,í Guðs friði.
    •               Halli.island_klarskjaldarmerki 
    •                                                       

                


Næsta síða »

Höfundur

Þórhallur Eiríksson
Þórhallur Eiríksson
Frekar hress eldri maður. Með alslags \%a grillur í sínum \%a sköllótta kolli
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband