17.6.2007 | 23:13
Það er kominn sautjándi júní.
Þjóðhátíðar dagur okkar Íslendinga er runnin upp bjartur og
- fagur.veðrið er bara ágætt,og spáin fyrir næstu daga
- frekar góð.Við ætlum að fara í bæinn á eftir til að líta á mann-
- lífið og það sem verður til skemmtunar.Förum örugglega í kaffi
- í kaffivagninn, eða eitthvað annað.okkur er boðið í afmæli
- Kristínar Aldísar, annað kvöld. Hugsa sér hún er að verða fimm-
- tán ára, Já svona Þýtur tíminn áfram.
- Og litla systir hennar hún Heiðdís Harpa verður kominn á
- skóla skyldu aldurinn í haust.
- Núna klukkan rúmlega fimm erum við komin heim, skruppum
- bæinn það var þvílíkur aragrúi af bílum alstaðar að við gáfumst
- bara upp,keyrðum vestur á nes, og þaðan upp í Árbæjarsafn.
- horfðum þar á þjóðdansafélaga dansa eftir harmonikkumúsík.
- Svo fórum við og fengum okkur sukkulaði og meðlæti. þurftum að
- biða eftir þjónustu í þrjú korter, það var svona mikið að gera
- hjá stelpu skinnunum, maður var ekkert að stressa sig yfir því,
- Svo fórum við bara heim, til að hugsa um kvöldmatinn.
- vorum með þetta fína
- einiberja kryddað lambalæri, sem bragðaðist
- alveg frábær lega,.Svanur var ekki í mat, fór í bæinn með
- vinum sínum, og þeir fengu sér eitthvað snarl saman.
- Við Svanur fórum niðrí Leirubakka til Siggu og Krúsa til að
- horfa á leikinn milli Serba og 'islendinga, Frábær leikur sem
- strákarnir unnu sem var þeim mikilvægt, til að komast´áfram
- Ljóð dagsins.
- Bjart er í júní blærinn hlír´
- blómin risin úr dái,
- allur heimurinn er sem nýr,
- eyddur hjúpurinn grái.
- Ótrúleg gerast ævintýr,
- ótal vættir á stjái,
- þá Jónsmessunæturdöggin dýr
- drýpur af hverju strái.
- Höf.J B.Frá.Hallkelsstöðum.
- Góða nótt,í Guðs friði.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:41 | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.