17.6.2007 | 23:13
Það er kominn sautjándi júní.
Þjóðhátíðar dagur okkar Íslendinga er runnin upp bjartur og
- fagur.veðrið er bara ágætt,og spáin fyrir næstu daga
- frekar góð.Við ætlum að fara í bæinn á eftir til að líta á mann-
- lífið og það sem verður til skemmtunar.Förum örugglega í kaffi
- í kaffivagninn, eða eitthvað annað.okkur er boðið í afmæli
- Kristínar Aldísar, annað kvöld. Hugsa sér hún er að verða fimm-
- tán ára, Já svona Þýtur tíminn áfram.
- Og litla systir hennar hún Heiðdís Harpa verður kominn á
- skóla skyldu aldurinn í haust.
- Núna klukkan rúmlega fimm erum við komin heim, skruppum
- bæinn það var þvílíkur aragrúi af bílum alstaðar að við gáfumst
- bara upp,keyrðum vestur á nes, og þaðan upp í Árbæjarsafn.
- horfðum þar á þjóðdansafélaga dansa eftir harmonikkumúsík.
- Svo fórum við og fengum okkur sukkulaði og meðlæti. þurftum að
- biða eftir þjónustu í þrjú korter, það var svona mikið að gera
- hjá stelpu skinnunum, maður var ekkert að stressa sig yfir því,
- Svo fórum við bara heim, til að hugsa um kvöldmatinn.
- vorum með þetta fína
- einiberja kryddað lambalæri, sem bragðaðist
- alveg frábær lega,.Svanur var ekki í mat, fór í bæinn með
- vinum sínum, og þeir fengu sér eitthvað snarl saman.
- Við Svanur fórum niðrí Leirubakka til Siggu og Krúsa til að
- horfa á leikinn milli Serba og 'islendinga, Frábær leikur sem
- strákarnir unnu sem var þeim mikilvægt, til að komast´áfram
- Ljóð dagsins.
- Bjart er í júní blærinn hlír´
- blómin risin úr dái,
- allur heimurinn er sem nýr,
- eyddur hjúpurinn grái.
- Ótrúleg gerast ævintýr,
- ótal vættir á stjái,
- þá Jónsmessunæturdöggin dýr
- drýpur af hverju strái.
- Höf.J B.Frá.Hallkelsstöðum.
- Góða nótt,í Guðs friði.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2007 | 23:55
Dægurþras og Kvöldþankar.
Í dag er sextándi júní .,þegar ég fór til vinnu í morgun þá hélt ég
að væri komið haust veðrið var þannig,drungaský á himni og frekar
kalt´.Það rættist heldur úr veðrinu þegar líða tók á daginn. Held
að hitinn hafi komist í tíu gráðurnar eða svo, .frekar rólegt að gera
í vinnunni,búin að vinna kl,hálf fjögur. Það verður opið á morgun
frá níu til átta annað kvöld.Ég verð ekki að vinna á morgun mér
bara datt það sko als ekki í hug á sjálfan líðveldisdaginn.
Nóg er samt ,.það er orðið svo að það verður unnið alla daga ársins..
ef fram gengur sem horfir.Við Dísa fórum með blómin sem við keyptum vestur í garð
og settum á leiðin,´. Árni var búin að setja blóm á leiðin, áður en að hann fór austur
hann er kominn í sumarfrí og ætlar að vera á Vopnafirði einhvern tíma,og veiða silung
ja mikið öfunda ég hann.Og þó
Vísa dagsins.
Oft til lofts og sjávar lítur
lyndisprúður skipsstjórinn.
Ef ei bár'á skeri brýtur
bíst hann strax í róðurinn.
Blikinn létta öldu öslar
öflin vélar eru næg.
Líka þarna Gammur göslar
gerðist þeirra sigling fræg.
Góða nótt í Guðs friði.
Tónlist | Breytt 17.6.2007 kl. 00:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.6.2007 | 00:08
Kvöldþankar
- hitinn kringum tíu gráðurnar. Við Dísa fórum tíl Steina í dag,
- lentum þar í kaffi og vöfflum . Ég gerðist hárskeri klippti Steina
- hann var þara nokkuð hress og ánægður með verkið.
- svo fórum við í Húsasmiðjuna og Blómaval keiptum blóm sem
- við´ætlum að fara með suður í garð á leiðin. það fór að rigna svo við ákváðum að geyma það til morguns.síðan lá leiðin í Býkó þar
- fengum við sturtuhaus á mjög góðu verði.versluðum í Nettó
- það sem vantaði til matar .fórum svo heim að hugsa til kvöldverðar.Ég horfði eiginlega ekkert á sjónvarpið í kvöld.
- Svanur hefur verið að mestu leiti heima í dag, skrapp að ég held
- í banka og kannski eitthvað fleira.
- Vísa dagsins.
- Ligg ég þar um langa stund
- líð um draumalöndin.
- fífilbrekka gróin grund
- grösin efla tryggðarböndin
- Atóm ljóð.
- Svo mörg voru þau orð
- Dagur og nótt mætast í hringrás,
- tíma talsins, mánuðir og ár líða með
- ógnar hraða, og verða að tugum ára.
- Öldum.
- Tíminn stendur aldrei kyrr.
- Göngum hægt um gleðinnar dyr.
- Góða nótt, í Guðs friði
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2007 | 00:33
dægurþras
- Ídag er fjórtándi júní, afbragðs veður ,skíað og sæmilega hlítt, koma svona annað slagið smá regnskúrir.Við Dísa fórum í heimsókn til Steina í dag ,Rósa er komin til landsins og verður í nokkra daga hér hjá pabba sínum og fyrir norðan hjá mömmu sinni. Húner með litla kút sinn Aðalstein með sér, og ektamaka.
- Fórum í búðir og VERSlUÐUM í matinn, saltkjöt og baunir tú-kall. ljómandi gott . Enn einn tapleikurinn hjá KR, töpuðu tvö núll fyrir FH á heimavelli,Þeim er bara ekki við bjargandi.
- Verða að taka sig á ef þeir ætla að halda sér innan deildarinnar.
- Vísa dagsins
- Dansinn á suðurey.
- Á suðureyu dunar dans,
- þar dansar Pétur hall
- við Maju litlu Másdóttur,
- í matsalnum er ball.
- Þar svífur létt á svalri nóttu,
- sævar blandin eim,
- ilmbylgja frá eini og fjólu
- inní dansins geim.
- Og fína Maja fagurarma
- freknótt er og hýr
- og munnurinn sem kirsuberja
- klassi og kjóllinn nýr.
- Ó Pétur hall, það er víst þú,
- sem ekkert stenst núna
- á heimsbyggðinni vífa val.
- Það veit ég ha, ha, ha..
- Þítt úr Sænsku. Þórarinn frá Steintúni.
- Góða nótt í Guðs friði.
- Halli,.
Vinir og fjölskylda | Breytt 17.6.2007 kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2007 | 22:10
Dagsinns blíða koppalogn.og ljóð dagsins,.
Í dag er sunnudagurinn tíundi júní.
- Bjartur og fagur hefst þessi drottinsdagur með hlíyndum og
- fögru veðri , fremur tíðindalitið ,þetta vanalega í fréttunum
- svo sem ekki neitt, ,.Við Dísa fórum í heimsókn til Steina
- og fórum við vestur í Kaffivagn og fengum okkur kaffi og
- meðlæti. Þaðan vestur á nes og fengum okkur góðan göngutúr
- og fylgdumst með fuglalífinu sem er alltaf jafn gaman.
- Svo fórum við bara heim til að gera kvöldmatinn kláran til átu
- sem tókst klukkan rúmlega sex : horfði á fréttirnar og fylgdistmeð þættinum hans Gísla,
- það er komið kvöld og blessuð sólin farin að síga til vestursins
- Vinnu vaktir framundan.
- Ljóð dagsins. Það sem ég elska
- Þítt úr Sænsku.
- Gróandi ´jörð ég gleðst í þér.
- Gljábláa haf þú fróar mér.
- Himneska sól hæð og leynd,
- hérvistar ljós í sjón og reynd
- Meira en heimslán og heiðurs krans
- meira en sólar glæstan glans,
- gljáfextrar bylgju léttan dans
- elska,elska ég
- himneska ljóssins leyndarmál
- í leitandi mannsins sál
- Þýtt úr Sænsku.
- Þórarinn ,Frá Steintúni .
- Höfundur .
- Erik Gustaf Geljer.
- Góða nótt í Guðs friði.
- Halli.
Vinir og fjölskylda | Breytt 13.6.2007 kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2007 | 22:51
Smá innlegg í dægurþrasi, Ljóð dagsins.
- sæmilega hlítt en skíað,spáin fyrir næstu daga svipað
- veður ,gæti vætt hérna sunnanlands fram undir
- helgi, og hitinn á að fara í tuttugu stigin á sunnu-
- dag,Kannski að sumarið komi með sól og blíðu um
- helgina, vonandi.Frekar fátt markvert skeð í dag hjá mér
- í dag, þetta vanalega farið í vinnuna róleg vakt.
- Það er þusað á þingi. Guðni fer á kostum og sendir stjórnarliðum tóninn.Málefni dagsins ,barna og öldrunarmál. Það vakti nokkra furðu
- þegar Einar Oddur tók til máls í umræðunum og var með efasemdir
- með loforðalista stjórnar .Finnst greinilega í of mikið ráðist.,
- annars veit ég ósköp lítið um málefni af þessu tagi.En eitt er víst
- að Jóhanna Sig. stendur fyrir sínum málaflokk á þyngi.
- Flateyrar og Vestmannaeyja mál og aðrir staðir á landinu verða
- örugglega stórir póstar á sumarþyngi það verður að taka þessi mál
- föstum tökum og leysa.
- Ljóð Dagsins. Trúi ég?
- Stundum fyllir hugann einhver efi
- enginn virðist svara bænum mínum,
- burðast ég með fangið fullt af pínum
- frið í sálu minni lítinn hefi,
- vona þó og bið að Guð mér gefi
- gneyptum manni brot af kærleik sínum.
- Höfundur,.Björn G Guðjónsson
- Góða nótt, í Guðs friði
- Halli.
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.6.2007 kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2007 | 22:10
Blaðrað um daginnog veginn.
Allra besta veður búið að vera í dag,smá rigningarsuddi annað slagið
og sæmilega hlítt. Var á vakt til hálf fjögur frekar lítið að gera.
Við erum að horfa á leik Íslands og Svíþjóðar,Þrjú núll í hálfleik.
Sama hörmungin gekk áfram í seinni hálfleik endaði fimm núll.
Já svona er fótboltinn, það eru ekki alltaf jólin.Horfðum á leik Eista og
Englendinga, þrjú núll þar í frekar döprum leik.
Vísan .Övug´mæli.
Skepnu eina ég úti sá,
sem elskar litinn hvíta,
grátandi ég svínið sá,
sínar lappir kríta.
---------------------------------------------------------------------------------------
Góða nótt,í Guðs friði.
Halli.
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.6.2007 kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2007 | 23:55
Heimsókn. Og vísa dagsins. fimmta júní.
Góða kvöldið góðu vinir, gætnir verðum lígt og hinir, þegar hugan
þarf að hressa ,hræddur verð með ljóð gerð þessa.
Að mér sækir allslags efi,raunar líka rensl' úr nefi, þá minn gerist hugur
gramur. gustar vel og fer að hvessa.
Þannig hljóðar mitt innlegg í dag , Það er einhver árans púki sem er
að angra mig núna ,tek hann bara traustataki og hendi honum á dyr
hef gert það áður, og ekkert meira með það.Ég hef lúmskan grun
um að það sé veðrinu að kenna, með púkann. Er ekki spáin rok og rigning næstu daga?
Jæja ég held að ég fari bara að láta þetta gott heita í dag,
og enda daginn með einni öfugmælavísu.
Oftast nær er álftin brún,
en hann krummi hvítur,
skundar fé um Skeljungs tún
sko hvar blýið flýtur.
Góða nótt, í Guðs friði.
Halli.
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.6.2007 kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góða kvöldið ,ef gott kvöld er hægt að kalla, út að lítal lýkt og að væri komið haust,. Já ég kíkti inn á
vefinn hjá honum Herði vinnufélaga mínum , Hann er bara fjandi snjall kallinn. og hefur
áhuga á ýmsum málum. Íþróttir eru honum auðsjáanlega ofarlega í huga. Já leikur Dana og Svía
var vægast sagt skrautlegur, hver eftirköstinn verða er ekki gott að segja.. Svo var það leikur okkar
um daginn á heimavelli sem við áttum að vinna.Hörmung, til hvers að hafa Eyð Smára sem
fyrirliða , mér er spurn,. Drengurinn er góður knattspyrnumaður sem aðrir leikmenn treystaalltof mikið á. Annan fyrirliða í landsliðið, er mín uppástunga . En Eyður þarf að vera í annari stöðu í
liðinu. Hvernig fer þettað með fiskveiðar okkar á komandi árum ef spár Hafró ganga eftir?
Vísa Dagsins verður övugmæli í þettað sinn.
Séð hef ég á sjónum hest,
selinn bíta á hánni,
íllfiskana vaðan verst
vagaði upp úr gjánni.
Góða nótt í Guðs friði.
Halli,.
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.6.2007 kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2007 | 21:19
Alsalags bull og blaður, dægurmál, stjórnmál , vísur og fl,
Hér er ég mættur aftur með svipaðar hugmyndir og í fyrra bloggi mínu.
í dag er föstudagurinn tuttugasti og fimmti maí, kulda skítur í veðrinu
hiti í kringum fimm gráðurnar. -- Kosningum lokið í flest skjólin fokið
framsókn hún tapar með stæl. . Bravó ., Geir og Sólrún.saman í stjórn.
Saman tóku sporinn létt og höfðu af mikið gaman það ég tel sé
mikið rétt, að þau náðu saman.--- ´? Vonandi verður þetta ágætis
stjórn virðist það svona í fljótu bragði séð. Valin maður i hverju rúmi
eða þannig sko.Fyrsti fundur hinnar nýu stjórnar var haldin í morgun
þar sem mál aldraðra og barna voru tekin fyrir, samkvæmt yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar.Sumarþing kemur saman næstkomandi fimmtudag,
þá verða þessi mál tekin fyrir. Verð á morgunvöktum alla helgina.
Það verður að hafa það.
Vísur dagsins, teknar af handahófi
Sveitin mín -
Strönd í Skeggjastaðahreppi.
Napurt er norður á strönd,
er nóttin heldur í garð.
Aðeins á efstu brúnum
örlar á hól og barð.
Hríðar ólgandi iða
æðir um freðið láð.
hér er mörg enn sem áður
orusta tvísýn háð.
Úti refur og rjúpa
og rindlar eiga ból.
krumma í köldu bergi
er klakinn eina skjól.
Brimið við banakletta
bryður dranga og sker.
kastast og byltist klungrið
í kvörninni miklu hér.
Til styrks skal stálið herða,
hér stoðar ekkert víl.
líf er þar enginn leikur,
ládeyða, setur í bíl.
Höfundur,. Þórarinn Frá Steintúni.
í Guðs friði.
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.6.2007 kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar