Færsluflokkur: Sjónvarp
10.1.2008 | 15:55
Þessi er svolítið gömul
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2007 | 17:38
Dagurinn í dag, líðandi stund
Ný borgarstjórn er sest að völdum.
Hér má sjá nokkra af fulltrúum nýrrar Borgarstjórnar sem á að stjórna út þettað kjörtímabil
Vonandi verða þau farsæl í starfi,og taki á vandamálum fráfarandi meirihluta af festu og einurð. Þetta Orkuveitu mál og útrás henni tengd ,finnst mér vera fyrir neðan allar hellur, ég verð nú bara að segja það. það á als ekki að hrófla neitt við Orkuveitunni, í þá átt að selja úr landi hlutabréf henni tengd. Eða er Orkuveitan ekki eign okkar skattborgara Reykjavíkur? Eða hvað. Það er sama þlessuð blíðan og bæirnir allt um kring eða hitt þó heldur, maður er orðinn hund leiður á þessari sífeldu rigningu, svo til á hverjum degi. Smá uppstytta svona annað slagið. Það mætti svo fara að glytta í heiðan himin ,og blessuð sólin að láta sjá sig.
Læt þetta duga í bili.
Vísur dagsins verða Öfug mæli í þetta sinn.
- Við gólfið er í húsum haf,
- hátt trú ég aurslá rísi,
- best er að þvo úr bleki traf
- og bera í hákarlslýsi.
- Í þokumyrkri sólin sést
- svart er hvítt á daginn,
- kýr með dindil, hali á hest
- hænsni passa bæinn.
- Silungurinn sótti ling,
- svalan hrísið brenndi,
- flugan úr gulli gerði hring,
- geitin járnið rendi
- Verið góð hvert við annað.
- Í Guðs friði .
- Halli.
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2007 | 18:27
Ný Borgarstjórn, og aðdragandi þess
Góðan og blessaðan daginn það er margt sem á okkur Reykvíkingum hrín þessa dagana.Borgarstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar fallinn, eftir rösklega hálfs annars árs setu,.Það er búið að ganga á ýmsu í sambandi við kaup og sölu hlutabréfa,í Orkuveitu Reykjavíkur,og mál sem henni eru tengd.Það er oft höggvið stórt og kurlað í smælki en svona gjörningar voru bara alveg hreint út sagt alveg, ótrúlegir: Ný fjögurra flokka stjórn sest að völdum á þriðjudag. og vil ég óska öllum þeim sem að henni stóðu til hamingju og farældar í starfi.Vilhjálmi, vil ég þakka fyrir störf hans sem borgarstjóra,og hans störf í þágu okkar Reykjvikinga. Dagur mun áreiðanlega verða góður borgarstjóri enda með gott lið,vaskra meyja og sveina. Læt ég svo þessum pistli mínum lokið í þetta sinn. Læt vísukorn fljóta með svona í lokinn, líkt og vanalega.
- Ég reyni að rata veginn
- þó rökkrið byrgi sýn,
- ég norpa niðurdreginn
- nóttin við mér gín,
- ég verð því frelsi feginn
- er friðarljósið skín,
- ég geng þá gleðisleginn
- götuna til þín.
- Ég stóð í karga köldum
- á kafi í djúpri for,
- ég hafði af voðans völdum
- vitlaust gengið spor,
- ég reyni á úfnum öldum
- að öðlast styrk og þor
- ég bið á bitrum kvöldum
- um blessun, faðir vor.
- Höfundur. Björn Guðni Guðjónsson.
- Þökk sé þér.
- Göngum hægt um gleðinnar dyr
- Góða nótt í Guðs friði.
- Halli.
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2007 | 14:34
Haustið er komið.
Er haustið komið.já við verðum að bíta í það súra epli að árstíðunum getum við ekki breitt.það er búin að vera frekar rysjótt veðurfar hér hjá okkur að undanförnu. vonandi fer að koma aftur góður veður kafli. Lífið gengur sinn vana gang,með gleði og sorgum í bland.Valsarar stóðu sig vel í fótboltanum, til hamynju allir Valsarar.Fréttir eru engar héðan úr byggðarlaginu, nema þær helstar að ég fékk hastarlegt búkhlaup hérna um daginn. er aftur orðinn stálsleginn, eins og ný sleginn Efra eða þannig sko.Læt þetta bull nægja í bili.
- Kem hérna með vísu korn dagsins.
- Mín ó kæra ég man þig
- mörg var gleði stundin,
- hönd í hönd oft leiddumst við
- heim í sælu lundinn.
- Kveðskappar upp úr kútnum standið
- kyrjið ljóð og treystið bandið.
- Margt Í ikkar fórum eigið
- yrkið,hnoðið saman megið.
- Elska og virða föðurlandið.
- Góðar stundir. í Guðs friði.
- Halli.
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.9.2007 | 23:39
Kíkt á bloggið á síðkvöldi.
Góða kvöldið, kíki hérna við aðallega til að bjóða nýan bloggvin velkominn ,.
Já vertu velkominn Guðni gaman að fá þig í minn fámenna en góðmenna bloggvinahóp. Hér sést Langanesið þar í nánd er kallinn fæddur og uppalin við lítinn fjörð við fiskveiðar og önnur tilfallandi störf.Og slæptist iðjulaus þess á milli.þegar ég var orðin nógu stór, fór ég á vetrar vertíðir,Vestmannaeyjar voru stundaðar á þessum mínum uppvaxtar árum,ýmist í landi í frystihúsum og svo á sjónum, sem gat oft á tíðum orðið frekar slarksamt. Jæja læt þessa þvælu nægja í kvöld ,.Heyrumst og sjáumst vonandi fljótlega.
- Læt svona af gömlum vana fljóta með svona svo sem eina til tvær vísur.
- Fátt er nú í fréttunum
- fækkar sumardögum,
- mér er raun af réttunum
- og rætnum bændasögum.
- Margt er sér til gamans gert
- geðheilsu til bjargar,
- glaður klóra bak mitt bert
- bætir það stundir margar.
- Göngum hægt um gleðinnar dyr
- Góða nótt, í Guðs friði.
- Halli.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.9.2007 | 21:26
Valsarar á góðu skryði. Ásamt öðru.
Enn og aftur sína Valsarar hvað í þeim býr náðu frábærum sigri á Víkingum í
kvöld og þar með eru þeir að stimpla sig í efstu sætinn sem er alveg frábært vonandi halda þeir áfram á sömu braut,hvernig er þetta er ég orðinn Valsari eða hvað,ég held það bara. Fór ekki á völlinn í þetta sinn .Mitt lið í Ensku deildinni náði naumum sigri á Sunderland. -1-0 .Arsenal sygraði í dag sinn mótherja með glæsibrag,. Svo skaust Liverlpool á topp úrvals deildarinnar með glæsilegum sigri á Derby, 6-0 sem er mjög ánægjulegt fyrir Liverpool aðdáendur, . Aston villa sIGRAÐI Chelsea, 2-0 á heimavelli.Þetta er svo sem að byrja þannig að margt á sennilega eftir að breitast í deildinni á komandi leiktíð, Sjáum hvað setur. Ljósanótt þeirra Reykjanes manna fór víst friðsamlega fram , lítið um pústra og gleðin skein af hverju andliti. Svona eiga sveitamenn að vera, eða þannig sko. Myndin hér til hliðar er ekki af flugelda sýningu þeirra Keflvikinga Og ekki má gleyma Njarðvíkingum, heldur er þessi fallega mynd tekin að síðkveldi út við Gróttu.
Ég var að fá staðfest úrslit Valur -Víkingur,sigur Valsara er vonandi sætur fyrir unnendur Vals: Bravó. Við unnum,. hverslags er þetta er ég orðin Valsari eða kvað, .Held það bara.
- Læt svo sem eina vísu fljóta með svona af gömlum vana,
- Ljóð dagsins.
- Fótbolti hand bolti
- barasta grín ,
- gæfa og gjörvi leiki
- göldrum má beita ei drekka vín
- brottrekstur verður á reiki .,
- Eina góða svona í lokin.
- Eftir talsvert þjark og þras
- við þrjóskan hin
- helminginn,
- lagði karlinn gerfigras
- á garðinn sinn.
- Hann gat ei þolað geðveikt bras
- við gróðurinn.
- Samt er lífið honum hjá
- harmljóð eitt
- yfirleitt,
- snjallræðisins liggalá
- fær litlu breytt.
- Ennþá fer hann út að slá
- ekki neitt.
- Höf,. Björn G Guðjónsson.
- Haf þökk fyrir, vinur .
- Göngum hægt um gleðinnar dyr.
- Góða nótt í Guðs friði.
- Halli.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2007 | 23:26
30,ágúst.Náði sambandi við Trinedad gegnum skype.
Ja nú er ég svo aldeilis hlessa, tenging komin á við útlandið eða eins og kerlingin sagði hérna um árið þegar talað var um kaffileysið og hvaðan það kæmi, sum sé frá Brasilíu, kerling þessi átti heima fyrir austan og var að rabba við vinkonu sína sem var mikil kaffisvelgur, þær vinkonur veltu þessu vandamáli með að nálgast blessað kaffið, fram og aftur, þar til önnur kvað upp með það að þær stöllur færu bara fótgangandi til Brasilíu.Já það skulum við gera sagði þá hin, En hvernig komumst við yfir skömmina hana Fnjósku? Hún var semsagt versti farartálminn . Þannig gæti ég sagt ,Búin að baksa og klóra mér í hausnum , fram og aftur en fæ engan botn í hvernig ég á að tengjast útlandinu. En hver verða ráð karls í koti? Jú jú,hann á sér tvo bráðmyndarlega sonu, sem má sjá hér til hliðar.Sá með skeggið er nefnilega í útalandinu, og til að hafa samband við hann í gegnum tölvuskömmina fjárfesti karl í fokdýrum skype símtóls apparati,sem hann hafði ekkert vit á að tengja. Þá hugkvæmdist karli að taka upp tólið og hringja í hinn soninn þann með derhúfuna,og biðja hann að redda gamla föður sínum í vandræðum hans, sem hann og gjörði brást skjótt við og reddaði málinu og var fljótur að. Þökk sé þér ljúfurinn minn.
---------------------------------------------------------------------------
Ljótt þetta með hundinn sem eigendurnir mistu frá sér, frétt í dagblaði. í dag, Fangaður af Lögreglu og aflífgaður án dóms.Saklaus fallegur hvutti.Læt aðra um að finna út hvar þetta gerðist. Svona nokk á ekki að gera ,eða var hundurinn ekki merktur? Ef svo hefur verið á að hafa samband við eiganda.eða það vil ég meina.
Vísa dagsins.
Heyrðu snöggvast Snati minn
- snjalli vinur kæri,
- heldurðu ekki hringinn þinn
- ég herman lega bæri ?
- Gangið hægt um gleðinnar dyr.
- Í Guðs friði . góðar stundir
- Halli.
- Góða kvöldið, aftur í sama farinu með apparatið sem ég fjárfesti í til að hafa samband við útalandið,þau í Trinedad heira ekkert í mér, verð að halda áfram að klóra mér í hausnum uns ég finn lausn á þessu.
- Finn ekki myndina af parketinu,
- Góða nótt . Sofum rótt uns dagur rís.
- Í Guðs friði.
- Halli.
- Hér kemur myndinn sem þú baðst um, Svanur.
- Kveðja til ykkar allra.
- Pabbi.
Sjónvarp | Breytt 1.9.2007 kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2007 | 23:20
Kominn með hraðvirkari tengingu, á netið, Vísa dagsins .Bull,
- Tuttugasti og níundi ágúst,komið svarta myrkur enda dumbungs þoka og rigningar suddi spáin svipuð fram undir helgi.Búin að fá mér nýa tengingu á netið sem á að vera betri en sú gamla sem ég var með áður, þarf ekki að slá inn símtengingu, sem er mikill kostur.Næ ekki sambandi við Jakob og famelí á Trinedad á skype tengingunni,er ekki alveg klár á því hvort að ég er tengdur eður ei þarf að fá aðstoð ., kvabba í Markúsi hann kemur og aðstoðar gamla pápa sinn ef hann má vera að því.
Nenni ekki að bulla meira í kvöld , fer bráðum að sofa, fer á vakt í fyrramálið vonandi verður veðrið skaplegt.
Verð að láta eina vísu fylgja með svona í lokinn
Vísa dagsins.
Er í þungum þönkunum,
þreittur öfug snúinn
með verk í skammar skönkunum
skapi,og viti rúinn.
Góða nótt í Guðs friði.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2007 | 00:09
Er góða veðrið búið? Vonandi ekki, ásamt öðru þvaðri
í dag er tuttugasti og fyrsti ágúst. Smá breyting áveðrinu frá blíðunni að undanförnu ,farið að vinda og rigningar hraglandi með smá skítkasti svona annað slagið. þetta var svona smá innskot´.--- . Flottir og góðir þættir hjá þér Krúsi minn ,ég hafði reglulega gaman að hlusta á þáttinn hjá þér í gær með henni Eivör hinni frábæru Færeysku söngkonu,meira af svona. og hafðu þökk fyrir ljúfurinn minn.Lokið við að parket leggja í dag, og ganga frá að mestu leiti,klára á morgun . svanur hafði samband í gærkvöldi OG LÆTUR MJÖG VEL AF veru sinni í útlandinu,talaði í gegnum skyepe. com sem er mjög sniðugt.Ég er búinn að setja þetta kerfi upp, vantar reyndar telefón til að geta notast við tölvuna. Og enn fellur krónan, og fall hennar var mikið. Hendum henni og tökum upp evruna, áður annað allt fer í hund og kött. Ekki finnast Þýsku fjallafarararnir ennþá, en það er víst farið að leita skipulega að þeim og þyrla á að fara til leitar á morgun,.vonandi finnast þeir syngjandi sælir og glaðir.Kominn aftur það var orðið svo skrambi framorðið í gærkvöld að ég nennti ekki að ljúka við bloggið eins og ég er vanur. Það gengur heldur illa hjá mér að tengjast skyepe.,Krúsi kom og ætlaði að hjálpa gamla skrögg pápa sínum að tengjast,og sagði að ég þyrfti að fá mér aðra tengingu. ADSL tengingin réði ekki við þetta .Enn rignir vonandi verður gott á morgun, tengingin heldur enn.
- Þá látum við eina flakka svona í lokinn.
- Vísa dagsins
- Taka skal nú fram svo færri tryllist
- að fyrri partinn ljóta ei ég sá,
- verra ef þú bara ekki villist
- veit ei hvarþú yrðir staddur þá.
- hrein og tær er heima lindin
- hressir vatnið tæra úr
- við mér blasir bernsku myndin
- æsku minnar forðabúr.
- Njótum þess að vera til.
- Góða nótt í Guðs friði.
- h
Sjónvarp | Breytt 23.8.2007 kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2007 | 00:08
Sumar fríið brátt á enda.
Fimmtándi águst ;bjartur og fagur,Parketið er komið á gólfið ,röskir og mjög duglegir strákarunnu verkið með sóma.koma á mánudaginn og ganga frá listum og öðru smálegu sem eftir er þetta hefur gengið eins og í sögu hjá þeim. Svanur hringdi í kvöld frá Trinedad og lætur mjög vel af, en finnst full heitt.Það er orðið drullu kalt hérna áklakanum í norðan strekkings vindi.Gæti svo sem farið að koma næturfrost hvað úr hverju,en maður vonar að það verði sama blessuð blíðan áfram. Ég er búinn að fara með allt gamla ruslið sem ég reif af stofunni og eldhúsi og holi í ruslagám. Svo er bara að slappa af fram á laugardag þá er maður búin með sumar frýið,hefst þá pomp og prakt þar til næsta Sumarfrí hefst.Jæja að mér sækir syfja og leti best að halla sér í fletið, líta í bók af gömlum vana, líta yfir síður nokkrar þar til ljós á lampa slokknar.Loka bók með sárum trega sögu las ég yndislega. En svona er það kæri vinur,gerist gamall lúinn raftur fer að sofa uns ég vakna aftur.
þetta var nú smá 'útúrdúr frá upphaflega efninu sem kemur sennilega ekki á spjöld bloggsins fyrr en á morgun í fyrsta lagi.
Jæja nóg með það verð að láta eina góða fljóta með svona í lokin
Göngum hægt um gleðinnar dyr .
Og pössum okkur á myrkrinu .
Góða nótt í Guðs friði.
Halli.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar